Tilkynning um rafræna losun – Lenovo A7-40 Tablet User Manual
Page 196
![background image](/manuals/470389/196/background.png)
Tilkynning um rafræna losun
195
Tilkynning um rafræna losun
Yfirlýsing um samræmi Federal Communications Commission (FCC)
Þessi búnaður hefur verið prófaður og reynst fylgja takmörkum fyrir B-flokk
stafrænna tækja, í samræmi við 15. hluta reglna FCC. Þessum takmörkum er
ætlað að veita hæfilega vörn gegn skaðlegum truflunum við uppsetningu í
íbúabyggð. Þessi búnaður myndar, notar og getur geislað útvarpsbylgjum og ef
hann er ekki settur upp og notaður í samræmi við leiðbeiningar getur hann valdið
skaðlegum truflunum á fjarskiptum. Hinsvegar er engin trygging fyrir því að
truflun verði ekki við einstaka uppsetningu. Ef þessi búnaður veldur skaðlegum
truflunum á útvarps-eða sjónvarpsmóttöku, sem hægt er að ákvarða með því að
kveikja og slökkva á búnaði, er notandinn hvattur til að lagfæra truflunina með
einni eða fleirum eftirfarandi aðgerðum:
Snúa eða endurstilla móttökuloftnet.
Auka fjarlægð á milli búnaðarins og móttakara.
Tengja búnaðinn í innstungu á annarri grein en þeirri sem móttökutækið er
tengt.
Leitið ráða hjá viðurkenndum söluaðila eða þjónustufulltrúa.
Lenovo er ekki ábyrgt fyrir einhverjum útvarps- eða sjónvarpstruflunum af
völdum óheimila breytinga eða breytinga á þessum búnaði. Óheimilar breytingar
geta ógilt heimild notandans til að nota búnaðinn.
Þetta tæki er í samræmi við 15. hluta reglna FCC. Notkun þess er háð eftirfarandi
tveimur skilyrðum: (1) Tækið má ekki valda skaðlegum truflunum, og (2) tækið
verður að taka við öllum truflunum, þ.mt truflunum sem geta valdið óæskilegri
virkni þess.