1 jarðtenging, 2 kröfur um aðstöðu, 1 dælustaðsetning – Xylem e-SV User Manual

Page 96: 2 pípulagnakröfur, 3 raftæknilegar kröfur

Advertising
background image

4.1 Jarðtenging

AÐVÖRUN:
• Tengið ávallt verndarleiðara við jarðtengil áður en aðrar raft-

engingar eru framkvæmdar.

• Jarðtengja skal allan rafbúnað. Þetta á við um dælubúnað, drif

og allan eftirlitsbúnað. Prófið jarðleiðara til að sannreyna að

hann sé rétt tengdur.

• Ef kaplingum er kippt út sambandi fyrir mistök, ætti jarðleið-

arinn að vera sá síðasti til að losna frá tengli sínum. Tryggið

að jarðarleiðarinn sé lengri en fasaleiðararnir. Þetta á við um

báða enda vélarkapalsins.

• Bætið við vörn gegn bænvænu losti. Setjið upp næman mis-

munarofa (30 mA) [leifastraumstæki RCD].

4.2 Kröfur um aðstöðu

4.2.1 Dælustaðsetning

HÆTTA:

Ekki skal nota þessa dælu í eldfimu/sprengifimu umhverfi eða

þar sem tærandi gastegundir eða duft er fyrir hendi.

Leiðbeiningar
Fylgið eftirfarandi leiðbeiningum varðandi staðsetningu vörunnar:

• Tryggið að ekkert hindri eðlilegt streymi kæliloftsins sem vélarviftan dreg-

ur.

• Gangið úr skugga um að uppsetningarsvæðið sé varið fyrir vökvalekum

og flóðum.

• Ef hægt er skal koma dælunni fyrir svolítið yfir gólfhæð.
• Umhverfishitinn skal vera á milli 0°C (+32°F) og +40°C (+104°F).
• Rakastig andrúmslofts í kring skal vera undir 50% við +40°C (+104°F).
• Hafið samband við sölu- og þjónustudeild ef:

• Rakastig fer upp fyrir viðmiðunar gildi.
• Herbergishiti fer yfir +40°C (+104°F).
• Samstæðan er staðsett meira en 1000 m (3000 ft) yfir sjávarmáli. Það

getur þurft að færa niður afköst vélar eða skipta henni út fyrir sterkari

vél.

Varðandi upplýsingar um hve mikið eigi að færa niður vélina, sjá Tafla 8.

Dælustöður og rými [millibil?].

ATHUGA:
Lárétt uppsetning dælunnar þarfnast séraðlögunar.

Sjáið fyrir nægri birtu og rými í kringum dæluna. Sjáið til að gott aðgengi sé

til uppsetningar og viðhaldsaðgerða.

Uppsetning ofan við vökvayfirborð (soglyftihæð)
Fræðileg hámarks soglyftihæð dælu er 10,33m. Í reynd verður sogkraftur

dælunnar fyrir áhrifum af eftirfarandi atriðum:

• Hitastigi vökvans
• Hæð yfir sjávarmáli (í opnu kerfi)
• Kerfisþrýstingi (í lokuðu kerfi)
• Mótstöðu í pípulögnum
• Innri mótstaða dælunnar sjálfrar
• Hæðarmismun
Eftirfarandi jafna er notuð til að reikna út hve hátt yfir vökvayfirborði megi

setja upp dælu:

(p

b

*10,2 - Z) ≥ NPSH + H

f

+ H

v

+ 0,5

p

b

Loftþrýstingur í börum (í lokuðum kerfum er kerfisþrýst-
ingur)

NPSH [Net
Positive Suc-
tion Head]

Gildi innri mótstöðu dælunnar gefin upp í metrum.

H

f

Heildartöp í metrum vegna streymis vökvans í gegnum
sogpípulögn dælunnar

H

v

Gufuþrýstingur í metrum sem samsvarar hitastigi vökvans
T °C

0.5

Ráðlögð öryggisfrávik (m)

Z

Hámarks hæð þar sem hægt er að setja upp dælu (m)

Varðandi frekari upplýsingar, sjá Mynd 7.

(p

b

*10,2 - Z) skal ávallt vera stærra en núll.

Varðandi frekari upplýsingar um afköst, sjá Mynd 5.

ATHUGA:
Ekki skal fara fram úr sogafköstum dælunnar því að það getur valdið

straumtæringu og skemmt dæluna.

4.2.2 Pípulagnakröfur

Varúðarráðstafanir

AÐVÖRUN:
• Notið pípur sem ráða við hámarksvinnuþrýsting dælunnar. Ef

það er ekki gert getur það valdið því að kerfið rofni með

hættu á meiðslum.

• Tryggið að allar tengingar séu gerðar af viðurkenndum tæk-

nimönnum í uppsetningu og sйu н samræmi við gildandi regl-

ur.

ATHUGA:
Fylgið öllum reglum sem gefnar eru út af stjórnvöldum sveitarfélaga ef dæl-

an er tengd við vatnskerfi þeirra. Ef stjórnvöld gera kröfur þar um, setjið þá

viðeigandi bakflæðisbúnað á soghliðina.

Gátlisti fyrri soglagnir og frárennslislagnir
Athugið hvort eftirfarandi kröfur eru uppfylltar:

• Allar pípulagnir eru með sérundirstöður. Pípulagnir skulu ekki valda álagi

á samstæðuna [eininguna]

• Barkar eða pípusmokkar eru notaðir til að komast hjá að titringur frá

dælu berist í pípulagnir og öfugt.

• Notið langar beygjur, forðist hné sem veita of mikið streymisviðnám.
• Sogpípulagnir eru fullkomlega vatns- og loftþéttar.
• Ef dælan er tengd við opna rás skal þvermál inntaks fara eftir uppsetning-

araðstæðum. Sogpípulögnin skal ekki vera grennri en þvermál sogopsins.

• Ef inntakslögn þarf að vera stærri en inntak dælu, skal setja upp hjámið-

juminnkun.

• Ef dæla er staðsett ofan við vökvayfirborð, skal setja upp sogloka á enda

inntakslagnar.

• Soglokinn er alveg á kafi í vökvanum þannig að loft kemst sleppur ekki

meр н iðukastinu inn í dæluhjólið, þegar vökvayfirborð er í lægstu stöðu

og dælan er uppsett ofan við vökvayfirborð.

• Stopplokar af réttir stærð eru settir á inntakslögn og á framrásarlögn (af-

tan við einstreymislokann) til að stýra afköstum dælunnar, en einnig vegna

skoðunar og viðhaldsvinnu.

• Einstreymisloki er settur upp í framrásarlögn til að hindra bakflæði inn í

dæluna þegar slökkt er á henni.

AÐVÖRUN:
Ekki skal nota stopploka á framrásarlögn í lokaðri stöðu til að

hægja á dælu lengur en nokkrar sekúndur. Ef dælan þarf að vera í

gangi með framrásarlögn lokaða lengur en nokkrar sekúndur,

skal setja upp hjáveitulögn til að hindra yfirhitun á vatni inni í

dælunni.

Varðandi teikningar sem sýna pípulagnakröfur, sjá Mynd 12.

4.3 Raftæknilegar kröfur

• Reglur sem eru í gildi á staðnum eru æðri þessum sérkröfum.
• Varðandi slökkvikerfi (brunahana og/eða úðakerfi), skal fara eftir gildandi

reglum.

Gaumlisti fyrir raftengingu
Athugið hvort eftirfarandi kröfur eru uppfylltar:

• Rafleiðarar eru varðir fyrir háum hita, titringi og hnjaski.
• Á rafveitulögninni er:

• Skammhlaupsvörn
• Mjög næmur mismunarofi (30 mA) [leifastraumstæki RCD] til að veita

viðbótarvörn gegn raflosti.

• Skilrofi á aðallögn með snertibili a.m.k. 3 mm.

is - Þýðing á upprunalegum leiðbeiningum

92

e-SV - Íslenska

Advertising